12apríl

Gleðilega páska!!!

Gleðilega páska .... Nú erum við litla fjölskyldan í Klapparhlíðinni búin að gæða okkur á gómsætu páskaeggjunum okkar. Birna María var ótrúlega spennt fyrir þessu og fannst ekkert smá gaman að leita af páskaegginu sínu. Við Unnar földum páskaeggin fyrir hvort öðru þar sem ég er alin upp við það að páskaeggið mitt sé falið. Finnst þetta ótrúlega gaman og Birna María hjálpaði að sjálfsögðu til. Ég var nú samt ekki sátt við felustaðinn sem Unnar valdi.... alltof erfiður... Í gegnum árin hefur pabbi falið eggið mitt á svínslegum stöðum og t.d. eina páskana fann ég það ekki fyrren kl 18. Unnar virðist ætla að taka við af pabba.

Annars þá höfðum við Birna María þa ótrúlega gott í eyjum og komum heim í gær. Birna María stóra stelpan okkar er að hætta með bleyju núna. Hún fær hana bara á nóttunni og hefur það gengið brösulega en nú erum við að sjá fyrir endann á þessu. Hún allavega pissaði ekkert á sig í gær :). Hún er orðin dugleg að láta vita en við keyptum annan kopp í eyjum því áður en hann var keyptur þá héllt hún bara í sér.

Jæja við ætlum að skella okkur í Húsdýragarðinn núna kl 11. það er víst eitthvað skemmtilegt um að vera þar. Svo verður gaman að sjá hvernig páskamaturinn heppnast hjá mér í kvöld en ég er búin að fá góðar leiðbeiningar :) .

Kveðja
Helga sem er alveg að elska að vera í páskafríi!!
12. apríl 2009 klukkan 09:09
Helga Jóhanna Harðardóttir
5 athugasemdir
29mars

Styttist í páskafrí...

Hellú hellú...
Já einhver bloggleti er í mér þessa dagana. Satt að segja hef ég nú verið eitthvað takmarkað í tölvunni. Rétt kíki á facebook og tölvupóstinn :).

Ég fer í páskafrí eftir 5 daga eða á föstudaginn næsta þegar ég er búin að kenna. Þetta er sá hluti ársins sem ég elska að vera kennari :) ekki verra að fá svona langt páskafrí. Ég ætla að skella mér til eyja í viku og Birna María með mér að sjálfsögðu. Unnar ætlar samt að vera í bænum að læra fyrir próf. Birna María er alveg ótrúlega spennt og er alltaf að spyrja hvenær við förum í flugvélina.

Ég og Unnar keyptum okkur sumargjafir handa hvort öðru í gær. Við ákváðum að gefa hvort öðru svefnpoka fyrir sumarið. Planið er að nota tjaldið í sumar og fara í nokkrar útilegur. Síðasta sumar vorum við alltaf með sængur og var það frekar kallt stundum. Ég held að það muni miklu að vera í góðum svefnpokum. Birna María fær svo líka nýjan poka þegar þeir koma í búðina.
Hverjir ætla svo að koma með okkur í útilegu í sumar??

Jæja annars óska ég ykkur bara gleðilegra páska!!
29. mars 2009 klukkan 10:58
Helga Jóhanna Harðardóttir
2 athugasemdir
05mars

..

Hey hó
Mín bíður spennt eftir morgundeginum núna því við ætlum að skella okkur á eyjuna okkar sætu og fínu. Alveg komin tími til að láta sjá sig aðeins í eyjunum.

Við vorum að fá okkur nýtt spil sem heitir Partners. Þið sem hafið gaman af að spila þá mæli ég mjög mikið með þessu spili. Rosalega skemmtilegt.

Þessa dagana í vinnunni er ég að undirbúa Afríkuþema..hehe jebb ég sem gat varla fundið Afríku á landakorti. Hugsið hvað ég á nú eftir að læra mikið á þessu. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt og ég mun bara læra með nemendum.

Jæja verð að fara að sinna nemendum mínum..

Síja

05. mars 2009 klukkan 12:21
Helga Jóhanna Harðardóttir
2 athugasemdir
28febrúar

...

HÆ Hó
Það er einhver bloggleti í mér þessa dagana. Allavega þá er unga daman mín smá lasin núna og því eyðir maður helginni inni að gera ekki neitt. Ekki alveg það sem ég hefði valið en maður verður víst bara að fylgja þessu. Það er nefninlega ekki alveg minn stíll að hafa ekki neitt að gera um helgar eða eins og Unnar segir að það þarf alltaf að vera einhver dagskrá í kringum mig. Það má vel vera að það sé þannig en mér finnst skemmtilegt að hafa eitthvað fyrir stafni.

Ég get svosem alveg dundað mér hérna við að taka til og baka eða eitthvað. Spurning hversu duglegur maður verður. Það versta er bara hvað það er yndislegt veður úti, alveg sól og blíða svo að manni dauðlangar út að labba eða eitthvað.

Ég var um daginn að skoða íbúðir að ganni mínu hér í Klapparhlíðinni. Þá þurfti ég endilega að rekast á ótrúlega fína íbúð á þokkalegu verði. Vildi óska að ég gæti spólað 2 ár fram í tímann. Þetta er alveg svona ekta íbúð sem maður vildi kaupa og nú get ég ekki hætt að hugsa um hana....djöö ...

Jæja ég ætla að fara að lesa fyrir lasarusinn minn..
28. febrúar 2009 klukkan 13:50
Helga Jóhanna Harðardóttir
2 athugasemdir
03febrúar

Stollt móðir...

Það er alveg magnað hvað þarf lítið til að gleðja mann í uppeldinu. Litla dúllan okkar vann þann sigur í dag að gera þarfir sínar í fyrsta skiptið í klósettið. Hún tók þetta bara með stæl og gerði bæði í einu í fyrsta skiptið. Það varð að sjálfsögðu þvílík fagnaðarlæti og ís í verðlaun fyrir hana. Litla dúllan var frekar mikið montin en fór samt líka pínu hjá sér. Bara æðislegt!!! 
Erum að vinna á fullu í þessum bleyjumálum. Tökum af henni bleyjuna um leið og hún kemur heim af leikskólanum. Hún að sjálfsögðu hefur látið allt flakka á gólfið og þá verður hún sko alls ekki sátt og frekar sár út í sjálfa sig. Vonandi mun þetta bara ekki taka rosalega langan tíma en við gefum henni bara þann tíma sem hún þarf í þetta. En allavega sigur hjá henni í dag í þessum málum...
Við Unnar fórum á Tapas barinn um helgina og jammí það var sko mjög gott. Sérstaklega eftirrétturinn hehehe. Við skelltum okkur svo í bíó á eftir á myndina Yes Man. Mjög skemmtileg mynd. Nú er bara planið að fara og sjá nýju þrívíddarmyndina. Mér finnst sko algjört möst að sjá hana. Hlakka líka svaka til hehe.
Annars segi ég bara Adios
03. febrúar 2009 klukkan 21:17
Helga Jóhanna Harðardóttir
2 athugasemdir
31janúar

Skemmtileg helgi!!!
Við buðum Oddný og Samma í mat í gær. Ótrúlega gaman að hitta þau og borða góðan mat, nammi og spila. Við spiluðum ticket to ride, alveg ótrúlega skemmtilegt spil. Stelpunum finnst líka svo gaman að hittast og þær eru alltaf að verða duglegri og duglegri að leika saman. Birna María er samt á því tímabili núna þar sem dótið sem hinn er að leika við er miklu meira spennandi, líka ekkert alveg vön að leyfa öðrum að leika við dótið sitt en það er bara eitthvað sem hún lærir.

Við Unnar ætlum að skella okkur út að borða og í bíó í kvöld. Elfa Ásdís ætlar að passa fyrir okkur. Okkur fannst tilefni til að fagna því hvernig Unnari gengur í skólanum. Kallinn var jú í 3 sinn á forsetalistanum. Ég er ekkert smá stollt af honum. Hann er sko ekkert smá klár þessi kall. Líka eins gott að Birna María fái stærðfræðihæfieikann hans. Við ætlum að fara á Tapas barinn. Ég hef einu sinni borðað þar og það var ótrúlega gott og ég efast ekki um annað í kvöld.

Annars þá erum við í bleyju og duddu hugleiðingum þessa dagana. Ætlum svona að fara að ráðast í það að minnka duddu og reyna að láta hana hætta með bleyju. Allavega vera voða dugleg að æfa hana að pissa í klósettið. Verst að ég væri til í að fara bara eitthvað í frí í viku til að gera þetta. Finnst eitthvað voða erfitt að reyna að gera þetta og senda hana svo á leikskólann og geta ekkert stjórnað :) .

Annars þá bið ég bara að heilsa í bili.
31. janúar 2009 klukkan 10:13
Helga Jóhanna Harðardóttir
1 athugasemd
28janúar

Mikið ótrúlega langar mig mikið til að fara á skíði.....

Það er búin að vera smá skíðaumræða í vinnunni hjá mér. Ein fór í vikunni að skella sér á skíði og dííí hvað það minnir mig á hvað það er ótrúlega gaman að fara á skíði og maður er svo mikill Vestmannaeyingur í sér að maður fattar bara engan veginn að maður getur bara skellt sér í Bláfjöll og skíðað ef maður vill (ef það er opið). Það er allavega búið að snjóa og snjóa í dag. Mér langaði nú líka alveg hryllilega bara að fara inn í dal og bruna á tuðru. En það er nú því miður ekki í boði, þar sem maður er víst ekki á eyjunni.

´´Eg veit ekki alveg hvað ég á að gera með þetta blogg. Er ekki bara bloggheimurinn að detta út núna vegna fésins??

28. janúar 2009 klukkan 20:41
Helga Jóhanna Harðardóttir
4 athugasemdir
23janúar

Skvísan mín að halda uppá afmælið sitt á leikskólanum





Bara krútt ... 
23. janúar 2009 klukkan 10:29
Helga Jóhanna Harðardóttir
3 athugasemdir
18janúar

2 ára afmælisveislu lokið

Við héldum uppá afmæli prinsessunnar okkar í dag. Litla daman mín verður 2 ára á morgun. Vóóó ég er ekki alveg að trúa því hvað tíminn líður hratt. Þetta var allavega voðalega skemmtilegur dagur. Það var troðið af gestum og vorum við fegin að sumir komu aðeins of seint þar sem íbúðin rúmaði einfaldlega bara ekki alla í einu. Verðum örugglega að skipta þessu eitthvað upp á næsta ári en þetta var samt voða gaman. Hún fékk alveg helling af flottum gjöfum og vil ég nú bara þakka fyrir stelpuna enn og aftur.

Á morgun fær hún svo aðra afmælisveislu á leikskólanum. Fær að fara með saltstangir og rice-crispieskökur með sér.

Ég veit ég hef verið léleg að blogga. Hef bara einhvernvegin ekki nennt því. Er búin að vera eitthvað voða lítið á netinu undanfarið.
18. janúar 2009 klukkan 21:09
Helga Jóhanna Harðardóttir
4 athugasemdir
31desember

Nýtt ár að ganga í garð...

Þá er gamlársdagur runninn upp. Mikið ofsalega er jólafríið fljótt að líða, maður er bara á heimleið eftir 4 daga. 
Það er frekar mikið rok hérna núna, vonandi lægir eitthvað á eftir og vonandi verður ágætis veður í kvöld þegar nýja árið gengur í garð. Það verður svo miklu skemmtilegra þegar það er hægt að skjóta almenninlega.

Við vorum í jólaboði í gær. Það voru ótrúlega skemmtileg pakkaskipti. Þetta var þannig að allir fengu númer og sá sem var númer 1 var fyrstur til að fá að velja sér pakka og opna hann. Sá sem var svo númer tvö opnaði sinn pakka og ef honum leist betur á pakkann hjá númer 1 þá mátti hann skipta án þess að númer 1 fengi eitthvað um það að segja. Það voru bæði grín gjafir og svo líka flottar og fínar gjafir inn á milli. Ég var svo heppin að vera númer 15 af 18 svo að fáir fengu að stela af mér pakkanum. Ég fékk freyðivín flösku sem margir voru búnir að vera að berjast um. Það var nú frekar fyndið eitt. Það var keyptur pakki sem var svona eiginlega ætlaður Birnu Maríu. Þetta var svona bók með pússli í. Pabbi fékk miða númer eitt og valdi sér óvart pakkann hennar Birnu Maríu. Þá hugsuðum við bara að Birna María gæti þá stolið pakkanum af afa sínum þegar hún fengi sinn pakka. Það var passað upp á að Jakob og Birna María væru síðust að velja sér því þau voru einu börnin. Þegar kom að Birnu Maríu þá nældi hún í síðasta pakkann sem var Nóa kropp og hún var svo hæst ánægð með það að það var sko ekki séns að hún vildi skipta við afa sinn. Þannig að sem betur fer var það afi hennar sem fékk þessa bók því þá fékk hún bara að eiga bæði. Það voru nú líka ýmsar fyndnar gríngjafir eins og klósettpappír og svona dótarí í klósett til að gera lykt en af öllum bar af pakkinn sem pabbi minn sá um að finna. Já hvað dettur ykkur í hug að pakki hafi fundið upp á sem gríngjöf ???  Allavega þá var Birna Ósk frænka sem ákvað að taka pakkann frá pabba þar sem það er greinilegt að hún þekkir hann ekki alveg nógu vel því hún héllt að hann væri pottþétt með eitthvað flott. Hún opnaði pakkann og öskrar svona þvílíkt og hendir pakkanum frá sér. Jamm hún fékk nokkra þorskshausa í pakka hehehe. Þessi maður.....það er ótrúlegt hvað honum dettur í hug.

Annars þá hefur þetta ár bara verið skemmtilegt og ýmislegt á daga okkar drifið. Við byrjuðum árið á að halda uppá 1 árs barnaafmæli sem gekk svona líka vel. Við Birna María skelltum okkur á Tenerife með mömmu og pabba og var það ákveðið með eins dags fyrirvara. Um páskana skelltum við okkur í eyjarnar og höfðum það mega gott og kósý. Ég útskrifaðist sem kennari og byrjaði í haust að vinna við það. Við Unnar skelltum okkur saman tvö til Danmerkur og höfðum það ótrúlega gott. Í sumar keyptum við okkur tjald og fórum í nokkrar skemmtilegar útilegur. Við fórum einnig í rosa flotta bústaðarferð með Oddný, Samma og Evu Natalíu sem var ótrúlega gaman. Unnar skellti sér í eftirminnilega ferð með vinum sínum til London og fór á NFL leik. Systir mín flutti í húsið sem hún og Bjarni eru búin að vera að byggja. Að lokum erum við svo að njóta jólanna hér í eyjum í góðu yfirlæti. Þetta ásamt mörgu öðru stendur uppúr á árinu.

Ég vil svo bara enda þessa færslu með því að óska ykkur öllum gleðilegs árs og Didda mín ég mun sakna þín í kvöld :(

Kveðja
Helga 

31. desember 2008 klukkan 11:10
Helga Jóhanna Harðardóttir
7 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur